top of page

flekkleysi er upplifun

UM OKKUR

Elskar leigutekjurnar en ekki umstangið? Ó já, við heyrum það.. oft!

Frábært fólk eins og þú sem elskar fasteignir og ferðamannaiðnaðinn og ekki síst tekjurnar af leigunni. En svo urðu leigutakarnir, bókanirnar, þrifin og þvottarnir frekar þreytt dæmi svo ekki sé talað um að vera bundin við umstangið í kringum þetta.

Við heyrum þetta... oft á dag! En elskum stússið.

Þegar ég var búin að snerta á mörgum flötum á þessum bransa, með mínar ákveðnu skoðanir á hvernig gestir upplifa aðkomu og hlusta á allt frábæra fólkið orðið þreytt á umstanginu, var ekki aftur snúið. Flekklaust varð til fyrir fólk eins þig sem er orðið pínu þreytt á stússinu í kringum bæði langtímaleigu egna sinna sem og skammtímaleigu orlofseigna en elskar innkomuna.

Sendu okkur póst fyrir alhliða leiguumsjón og bókunarstýringu eða bókaðu beint á síðunni í þrif og þvotta á meðan þú nýtur peninganna. Þú þarft ekki annað en að taka ákvörðun og hafa samband því við innréttum einnig tómar eignir til skammtímaleigu og klárum allan pakkann. Þú velur hversu miklu veseni þú vilt útvista. Þó þú elskir frelsið þá elskar crew-ið stússið. Við tökum myndir og semjum raunsanna lýsingu sem slefað er yfir. Svo verður að standa undir væntingum því... stjörnugjöfin... stjörnugjöfin!

Þetta snýst svo mikið um litlu hlutina. Að allt lúkki vel, tandurhreint og vel búið um. Að allt sé til staðar sem gert er ráð fyrir og í lagi! Því flekkleysi er upplifun frá bókun til brottfarar.

Smelltu á hnappinn efst á síðu til að senda okkur skilaboð eða bókaðu beint

Höfum gaman að þessu

Aníta Sigurbergsdóttir

Leiðtoga- og frumkvöðlaráðgjafi

...og eigandi Flekklaus

Anita Sig | Eigandi Flekklaus airbnb umsjón
bottom of page